19.1 Hlutfall gatnakerfis þar sem umferðarupplýsingar í rauntíma eru til staðar
Lýsing
Hlutfall gatnakerfis þar sem umferðarupplýsingar í rauntíma eru til staðar skal reikna sem fjöldi kílómetra gatnakerfis innan sveitarfélagsins þar sem umferðarupplýsingar í rauntíma eru aðgengilegar (teljari) deilt með heildarfjölda kílómetra gatnakerfisins innan sveitarfélagamarkanna (nefnari). Niðurstaðan skal síðan margfölduð með 100 og sett fram sem hlutfall gatnakerfis þar sem umferðarupplýsingar í rauntíma eru til staðar.