16.3 Hlutfall úrgangs sem verður til í sveitarfélaginu sem notað er til þess að framleiða orku
Lýsing
Hlutfall úrgangs sem verður til í sveitarfélaginu sem notað er til þess að framleiða orku skal reiknað sem heildarmagn úrgangs sem notað er til orkuframleiðslu (teljari) deilt með heildarmagni úrgangs sem myndast í borginni (nefnari). Niðurstaðan skal síðan margfölduð með 100 og sett fram sem hlutfall úrgangs sem verður til í sveitarfélaginu sem notað er til að framleiða orku. Orka sem mynduð er úr meðhöndlun úrgangs skal gefin upp í GJ á ári.