Hlutfall þeirra sem metur andlega heilsu sína sæmilega eða lélega (KK)

Breyting frá 31.12.2020 til 31.12.2021.
Created with Highstock 51dac2c8fac1a55403d7d4a5965d8eaac5fa0ea8Skalað gildiChart context menuHlutfall þeirra sem metur andlega heilsu sína sæmilega eða lélega (KK)2008201320182019202020212008201320182020202101002550750100255075TímabilSkoða 1 mánuð1MSkoða 3 mánuð3MSkoða 6 mánuð6MSkoða ár frá dagsetninguÁTDSkoða 1 árAlltDes 31, 2007Des 31, 2021Hlutfall þeirra sem metur andl…Hlutfall þeirra sem metur andl…Highcharts.com
Lýsing

Hér er á ferðinni almennur og vel rannsakaður mælikvarði sem hefur gott forspárgildi fyrir sjúkdómatíðni og dánartíðni (1,2). Spurningar þar sem fólk leggur mat á eigin heilsu hafa verið algengar í faralds-fræðilegum rannsóknum og hefur réttmæti þeirra reynst ágætt þrátt fyrir að mælingarnar byggi ekki á klínísku mati heilbrigðisstarfsmanns. Kostur við spurningar þar sem fólk leggur mat á eigin heilsu, umfram mælingar á tilteknum sjúkdómum, er að breytan nær að ýmsu leyti betur til skilgreiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem lítur á heilsu sem líkamlega, andlega og félagslega vellíðan en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma eða örorku (3). Í lýðheilsuvísum þótti ástæða til að beina sjónum að þeim sem meta heilsu sína sæmilega eða lélega fremur en að þeim sem meta hana góða eða mjög góða. Spurning: Hvernig metur þú almennt andlega heilsu þína? Svarmöguleikar: Mjög góð. Góð. Sæmileg. Léleg. Þessir vísir var birtur árin 2016 og 2018 og var gagnalindin þá rannsóknin Heilsa og líðan Íslendinga sem framkvæmd er af embætti landlæknis á fimm ára fresti. Árið 2017 og frá og með 2021 er gagnalindin fyrir þennan vísi árleg vöktun á áhrifaþáttum heilbrigðis sem Gallup framkvæmir fyrir embætti landlæknis. Kyn: Karlkyns