Lýsing
Hlutfall heimila sem eru útbúin snjall-orkumælum skal reiknað sem heildarfjöldi heimila sem eru útbúin snjall-orkumælum (teljari) deilt með heildarfjölda heimila í sveitarfélaginu (nefnari). Niðurstaðan skal margfölduð með 100 og sett fram sem hlutfall heimila sem eru útbúin snjall-orkumælum. Snjall-orkumælar skulu vísa til orkumæla á heimilum sem veita upplýsingar um orkunotkun heimilisins í rauntíma. Snjall-orkumælir á einnig að geta sent upplýsingar um orkunotkun beint á orkuveitu svo hægt sé að fá nákvæmari reikning fyrir orkunotkun heimilisins. Gagnaveitur: Orkuveita Reykjavíkur.